Tekt logo

Alzheimersamtökin 💜

Við höfum unnið fjölbreytt verkefni fyrir Alzheimersamtökin frá árinu 2022.

Munum leiðina 2022

Ný herferð fyrir Alzheimersamtökin sem bar heitið "Munum leiðin". Markmiðið var að fræða og fjölga Heilavinum sem styrkja Alzheimersamtökin mánaðarlega. Tónlistarmaðurinn Ásgeir Trausti lagði okkur lið með því að leyfa okkur að nota lagið Minning.

Hönnun á þessu fallega efni var í höndum Snorra Eldjárn. Um myndatöku og vinnslu sá Alda Valentína ljósmyndari.

Herferðin var ekki eingöngu í formi auglýsinga því fallegir fjólubláir bekkir voru settir niður víða um land ásamt því að fjólublár strætó með merkingum herferðarinnar ók um höfuðborgarsvæðið á alþjólegum degi Alzheimer og framan á honum stóð „MAN EKKI LEIÐINA" og óvíst var hverjir áfangastaðir hjá þessum strætó yrðu en allir velkomnir að hoppa um borð.

"Munum leiðina" var einnig notað í markaðsefnið fyrir Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka.

Fjólubláir bekki um land allt

Í fyrstu fórum við á fund með Kópavogsbæ og fengum leyfi fyrir því að fá að mála einn bekk á Kársnesinu í fjólumbláum lit og merkja hann "Munum leiðina" og setja QR kóða þar sem fólk gat farið inn á heimasíðu samtakana og lesið sér til og styrkt samtökin. Í kjölfarið heyrðum við í fleiri sveitafélögum og bæjarstæðum sem tóku vel í þetta og settu sjálf niður fjólubláa bekki í sama stíl. Árið 2024 var svo haldin bekkjarganga þar sem gengið var frá fjólublá bekknum í Hafnarfirði og að Seiglunni húsi samtakanna.

Styrktartónleikar 2023-2025

Árið 2023 fengum við þá hugmynd að halda styrkartónleika fyrir Alzheimersamtökin í samvinnu við Bæjarbíó sem skaffaði okkur húsnæðið. Tónlistarmenn og kynnir gáfu vinnuna sína svo allur kostnaður af miðasölu rann til samtakanna.

Næstu tvö ár 2024 og 2025 gerðum við slíkt hið sama.

Þekktu einkennin

Farið var í að plana herferð til að fá fólk til að þekkja einkenni heilabilunar svo hægt sé að bregðast hratt og rétt við. Við framleiddum þrjár auglýsingar sem sýndu einkenni á borði við gleymsku, endurtekningar og því að rata ekki í áður þekktu umhverfi.

Myndir

Myndbönd

Samfélagsmiðlar og sjónvarp

Styrkartónleikar árin 2023-2025