Réttingaverkstæði Jóa
Réttingaverkstæði Jóa er rótgróið fyrirtæki í Kópavoginum, þau leituðu til okkar og vildu leggja áherslu á markaðssetningu á sínu fyrirtæki.
Farið var í hugmyndavinnu og framleiðslu á efni fyrir þau þar sem við fórum þá leið að vekja athygli á því af hverju aðilar enda með bílinn sinn hjá Réttingaverkstæði Jóa. Hálfgerðar fornvarnar auglýsingar þar sem áherslur voru á að benda fólki á að muna eftir stefnuljósum, vera ekki í símanum á meðan það keyrir, fara varlega þegar þau bakka úr stæðum osfrv. Við sáum einnig um hönnun og merkingu á bíl á vegum fyrirtækisins í stíl við auglýsingaefnið sem búið var að framleiða.
Þetta efni er í stöðugri uppfærslu og auglýsingar hafa verið að birtast í útvarpi, sjónvarpi, á umhverfismiðlum og samfélagsmiðlum.


