STF - Samband stjórnendafélaga
Samband Stjórnendafélaga var stofnað árið 1938 og eru aðildarfélög 7 talsins með um 4.300 félagsmenn. Samstarfið við STF hefur verið í gangi frá árinu 2023. Við byrjuðum á að hressa upp á merki félagsins með lykilorðum og breyttum áherslum sem komu mjög vel út. Við höfum einnig séð um framleiðslu á öllu markaðsefni fyrir alla miðla ásamt því að framleiða vídeó efni í kringum ráðstefnur og sýningar.
Markaðssetning á Stjórnendanámi í samstarfi við Háskólann á Akureyri hefur einnig verið fyrirferðarmikil, þar höfum við séð um skipulagningu birtinga þvert á miðla og framleiðslu á efni.

