Staðsetning

Borgarholtsbraut 9, 200 Kópavogi

Hafðu samband

821-8333 / 695-2420

[email protected]

Fylgdu okkur

Samantekt


Tekt er gagnadrifið markaðsfyrirtæki.
Tölur og gögn segja okkur nákvæmlega hvernig staðan er eftir okkar markaðsvinnu. Við komum með tölulegar staðreyndir og greinum árangur herferða, birtingar, áhorf, lestur og hlustun. Skoðum í framhaldi næstu skref.

Gögn

Og Mælingar

Við söfnum saman gögnum og tökum saman tölur úr herferðum og metum árangur af þeim. Kerfin sem við vinnum á skipta hér höfuðmáli, skýrslur, mælaborð, áhorf, lestur, smellir og snertingar á hverri auglýsingu sem birtist eru dregnar saman í eina heildarmynd sem gefur okkur góða mynd af því hvað virkaði vel fyrir okkur og hvað við getum gert betur.

Árangur

AF Markaðsstarfi

Við metum stöðugt árangurinn af herferðum á meðan á þeim stendur og aðlögum og breytum þeim eftir þörfum. Árangur er mælanlegur á margan hátt og með því að vakta stöðugt þær herferðir sem eru í gangi hverju sinni þá sjáum árangurinn strax. Ef eitthvað er ekki að virka sem skyldi er hægt að bregðast við og sjá til þess að árangurinn verði eins og best verður á kosið þegar herferðir klárast.

Næstu skref

fyrir þitt fyrirtæki

Hvað gekk vel og hvað má bæta?
Viljum við halda áfram á sömu braut eða breyta áherslum? Það skiptir ekki máli hvort horft er í skammtíma auglýsingaplan eða lengri tíma markaðsáætlanir. Það þarf að meta stöðuna og skoða í hvert skipti hvaða leiðir við viljum fara næst.
Share by: