Borgarholtsbraut 9, 200 Kópavogi
821-8333 / 695-2420
20 ára reynsla úr fjölmiðlum, dagskrárgerð og í markaðsmálum. Starfaði lengst af hjá 365 miðlum/SÝN við dagskrárgerð, einnig sem sölustjóri útvarpsmiðla. Síðar deildarstjóri auglýsingadeildar yfir öllum miðlum sem eru Vísir.is, Bylgjan, FM957, X977, Stöð2 og Stöð2 Sport. Kristján er með víðtæka þekkingu í skipulagningu birtinga og framleiðslu efnis þvert á miðla. Er viðurkenndur stafrænn markaðssérfræðingur ásamt því að hafa útskrifast með Diploma í mannauðsstjórnun frá Háskólanum í Reykjavík.
Starfaði hjá 365 miðlum/Sýn í rúm 6 ár, fyrstu árin sem sölu- og markaðsfulltrúi á Vísi og síðast sem birtingarstjóri þvert á alla miðla fyrirtækisins. Áður vann hún við rannsóknarstörf hjá Hjartavernd. Sigrún útskrifaðist frá Verzlunarskóla Íslands og er með BA gráðu í sálfræði sem nýtist vel við alla tölfræðivinnu sem við skilum af okkur. Hún er einnig viðurkenndur stafrænn markaðssérfræðingur.
Með fjölbreytta reynslu í viðburðarstjórnun og almannatengslum. Starfar einnig sem útvarpskona á FM957. Var í teymi LD communications í Bretlandi sem sá um almannatengslastörf Rolling Stones. Starfaði við hátíðirnar Glastonbury, Wireless Festival, Download festival, Hard Rock Calling, Iceland Airwaves og Secret Solstice, einnig við tónleika Rammstein og Arcade Fire á Íslandi. Hún er viðurkenndur stafrænn markaðssérfræðingur og með BS gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands.
Takk fyrir að skrá þig á póstlista hjá tekt
ÚPS! Tækniklúður í gangi. Reyndu aftur síðar
All Rights Reserved | tekt